Suðurlandsskógum, Þorbergur Hjalti Jónsson sérfræðingur Mógilsá og Göran Espmark formaður Norrskog Svíþjóð.
Landbúnaðarháskóla Íslands, Reykjum, Ölfusi.
University of Iceland
Aðalfundur Félags skógarbænda á Vesturlandi verður haldinn
á Hótel Hamri í Borgarfirði þriðjudaginn 3. apríl 2012 kl. 18:00.
Helstu dagskrárliðir fundarins eru:
Hulda Guðmundsdóttir, skógarbóndi á Fitjum í Skorradal, og Sigvaldi Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Vesturlandsskóga, segja frá ferð til Hörðalands, sem farin var í boði
Fylkismannsins í Hörðalandi.
Framkvæmdastjóri Vesturlandsskóga segir frá Vesturlandsskógum.
Björn B. Jónsson starfsmaður LSE, Landssamtaka skógareigenda, kemur á fundinn og fræðir okkur m.a. um jólatrjáarækt á ökrum. Til stendur að mynda
hóp jólatrjáaræktenda á Vesturlandi í vor og eru áhugasamir hvattir til að mæta
á fundinn og kynna sér málið.
Auk þessa eru á dagskrá venjuleg aðalfundarstörf, súpa og kaffi.
Nýjir félagar velkomnir.
Mætum öll og eflum með því félagsstarfið.
Bergþóra Jónsdóttir, formaður Guðmundur Sigurðsson, gjaldkeri og Hraundís
Guðmundsdóttir, ritari
Pantanir vega gróðursetninga og skjólbeltaframkvæmda sumarið 2012 þurfa að berast Vesturlandsskógum fyrir 1. mars 2012. Eyðublöð til skáningar er að finna á heimasíðunni undir eyðublöð og samningar.
Fagráðstefna skógræktar 2012 verður haldin dagana 27.-29. mars n.k. á Húsavík. Þema ráðstefnunnar er tegundir, kvæmi og klónar í íslenskri skógrækt.
Meðal efnis sem þegar liggur fyrir eru erindi um kvæmaval stafafuru, fjallaþins, skógarfuru og sitkagrenis byggt á nýjum mælingum á misjafnlega gömlum kvæmatilraunum. Flutt verður erindi um kynbætur á alaskaösp og skoðuð almenn reynsla af notkun elris á Íslandi. Skráningarfrestur á ráðstefnuna er til 1. mars.
Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu ráðstefnunnar (hér).
Árið 2011 voru gróðursettar 324.147 plöntur í nytjaskógrækt á vegum Vesturlandsskóga og að auki fóru 9.750 plöntur og stiklingar í skjólbelti. Alls var plast lagt á 5.390 m. vegna skjólbelta.
Klikkið á myndirnar til að fá þær stærri.
Vesturlandsskógar óska skógarbændum og samstarfsaðilum, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
Nefnd, sem umhverfisráðherra skipaði á vordögum til að semja greinargerð um inntak og áherslur nýrra skógræktarlaga boðar til málstofu til að kalla eftir sjónarmiðum og ábendingum varðandi vinnu nefndarinnar. Þar mun formaður nefndarinnar, Valgerður Jónsdóttir hafa framsögu og síðan verða opnar umræður.
Tilgangur málstofanna er að fá ábendingar og tillögur sem nýst geta við áframhaldandi vinnu. Boðað er til tveggja málstofa, á Egilsstöðum og í Reykjavík. Málstofurnar eru öllum opnar og hvetur nefndin alla þá sem láta sig málefni skógræktar varða að taka þátt.
Haldnar verða tvær málstofur á eftirfarandi stöðum:
Einstakt tækifæri.
22. október n.k. verður haldin ráðstefna í Kaldalóni í Hörpu, undir yfirskriftinni “Heimsins græna gull”. Ráðstefnan er haldin á Ári skóga Sameinuðu þjóðanna 2011. Erlendir fyrirlesarar eru allir þekktir innan skógargeirans á Evrópuvísu og heimsvísu. Þetta er því ráðastefna sem fátt áhugafólk um skógrækt mun láta fram hjá sér fara.
ATH. Þeir sem vilja geta hlustað á fyrirlestra á íslensku á ráðstefnunni.
Rástefnugjaldið er vel niðurgreitt og er einungis 7.000.- (matur innifalinn)
Skráning á ráðstefnuna fer fram: http://www.skogur.is/rannsoknir-og-verkefni/radstefnur/radstefnur-arid-2011/heimsins-graena-gull
Dagskrá ráðstefnunnar hér að neðan
Föstudaginn 23. sept byrjaði námskeiðaröðin Grænni skógar 1 en það er í þriðja skipti sem farið er á stað með námskeiðaröðina hér á Vesturlandi. Í þetta sinn eru þátttakendur frá vesturlandi, suðurlandi og vestfjörðum. Í haust lýkur annari námskeiðaröðinni þar sem þátttakendur eru af vestur- og suðurlandi. Þessi námskeiða röð samanstendur af fjölbreyttum námskeiðum í skógrækt og nær yfir sex annir í þrjú ár. Námskeiðin eru á vegum Endurmenntunadeild Landbúnaðarháskóla Íslands í samvinnu við landshlutaverkefnin í skógrækt. Verkefnastjóri er Björgvin Örn Eggertsson Lbhí.
Á myndinni eru þátttakendur á námskeiðinu ásamt leiðbeinenda sem var Friðrik Asperlund í þetta sinn.
Aðalfundur LSE verður haldinn að Eiðum dagana 7.-8. október.
Áhugi er hjá Félagi skógarbænda á Vesturlandi að félagar fari saman með rútu ef næg þátttaka næst. Áætlað að leggja af stað á fimmtudeginum 6. okt. Þeir sem hafa áhuga á að fara hafi samband við Bergþóru í síma 866 4175 , netfang hrutstadir@simnet.is eða Guðmund í síma 862 6361, netfang gudmundur@vestskogar.is
Fjórtándi aðalfundur Landssamtaka skógareigenda
haldinn að Eiðum dagana 7. og 8. október 2011
Dagskrá fundarins:
Föstudagur 7. október
Kl. 13:00 Nytjaskógrækt – ráðstefna LSE
Kl. 17:00 Aðalfundur LSE settur að Eiðum
Kl. 17:05 Kosnir starfsmenn fundarins.
Kl. 17:10 Skýrsla stjórnar.
Kl. 17:40 Ávörp gesta
Kl. 18:10 Umræða um skýrslu stjórnar
Kl. 18:30 Mál lögð fyrir fundinn.
Kl. 18:45 Skipað í nefndir fundarins og málum vísað til nefnda.
Kl. 19:00 Fundi frestað – kvöldmatur.
Kl. 20:00 Aðalfundur jólatrjáaræktenda
Kl. 20:00 til 22:00 Nefndastörf
Kl. 20:00 BARa notalegheit
Laugardagur 8. október
Kl. 08:00 Morgunverður.
Kl. 09:00 Framhald nefndarstarfa.
Kl. 10:00 Framhald aðalfundar – nefndir skila áliti.
Kl. 12:15 Kosningar:
Tveir menn í stjórn,
þrír menn í varastjórn,
tveir skoðunarmenn.
Kl. 12:30 Önnur mál.
Kl. 13:00 Fundarlok.
Kl. 13:00 Hádegismatur.
Kl. 14:00 Ferð í skóg
Kl. 17:30 Komið að Eiðum
Kl. 19:00 Fordrykkur.
Kl. 19:30 Árshátíð skógarbænda og afmælishátíð Héraðs og Austurlandsskóga.
Nánari upplýsingar um aðalfundinn eru veittar á netfanginu bjorn@sudskogur.is